Loftræsikerfi

VSB Verkfræðistofa býr yfir áratuga reynslu í hönnun loftræsikerfa fyrir fjölbreytt mannvirki. Loftræsihönnun okkar miðar að því að skapa þægilegt og heilbrigt inniloft sem styður við vellíðan og afköst notenda. Við nálgumst hvert verkefni með heildræna sýn þar sem loftgæði, innivist, hljóðvist og rekstrarhagkvæmni eru í fyrirrúmi. Lausnir okkar taka mið af raunverulegri notkun rýma og eru hannaðar með sjálfbærni og langtímahugsun að leiðarljósi.

Með heildrænni nálgun og notkun BIM-aðferðafræði tryggjum við að loftræsikerfi séu samræmd við önnur tæknikerfi frá upphafi, sem dregur úr árekstrum og einfaldar framkvæmd.

Við höfum meðal annars reynslu af:

  • Hönnun loftræsikerfa í BREEAM- og Svansvottuðum byggingum
  • Ráðgjöf og hönnun í endurbótaverkefnum
  • Lausnum sem stuðla að góðri innivist og loftgæðum með CO₂-stýringu
  • Loftræsing með varmaendurvinnslu til að bæta orkunýtingu
  • Samræmingu tæknikerfa með BIM
Content image

Tengiliðir

Björn Snorrason

Byggingarsvið

bs@vsb.is

660 8608