Byggingarstjórn

VSB veitir faglega byggingarstjórn fyrir allar gerðir mannvirkja og tryggir örugga og skilvirka framkvæmd verkefna í samræmi við lög og reglugerðir. Með áratuga reynslu og þekkingu á íslenskum aðstæðum leggjum við áherslu á vandaða verkferla og góð samskipti við alla hagaðila.

Byggingarstjórar VSB annast innra eftirlit framkvæmda frá útgáfu byggingarleyfis til lokaúttektar. Í því felst meðal annars yfirumsjón með samræmingu verka, eftirlit með framkvæmd og samskipti við leyfisveitendur, hönnuði og iðnmeistara.

Content image

Byggingarstjórar okkar leggja ríka áherslu á að gæta hagsmuna verkkaupa með vönduðum vinnubrögðum og nákvæmu eftirliti. Við fylgjum verkefnum eftir af kostgæfni og tryggjum að öll gögn og skráningar séu í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar.

Reynsla VSB nær yfir fjölbreytt verkefni, allt frá íbúðarhúsnæði til flóknari mannvirkja eins og heilbrigðisstofnana og atvinnuhúsnæðis. Við leggjum áherslu á að tryggja gæði framkvæmda með faglegri nálgun og skipulögðu verklagi.

Tengiliðir

Gísli Ó Valdimarsson

Framkvæmdasvið

gisli@vsb.is

660 8612