VSB býr yfir sérþekkingu í hönnun samgöngumannvirkja og hefur hannað fjölbreyttar gerðir brúa, undirganga og göngubrúa sem henta íslenskum aðstæðum og uppfylla þarfir verkkaupa.
Góður undirbúningur og vönduð skipulagsvinna eru lykilþættir í hönnun samgöngumannvirkja þar sem öryggi er ávallt í forgrunni. Með BIM aðferðafræðinni nær VSB heildstæðri yfirsýn yfir öll hönnunarsvið verkefnisins, sem tryggir vandaða útfærslu og nákvæma samræmingu milli fagaðila.