Sérfræðingar VSB framkvæma ítarlegar greiningar á samgöngum með því að safna upplýsingum um núverandi ástand. Greiningarnar nýtast til að taka upplýstar ákvarðanir um skipulag og hönnun samgöngukerfa, framkvæmdir og stefnumörkun.
Við framkvæmum umferðatalningar með nákvæmri myndbandsgreiningu. Taldar eru ferðir allra helstu ferðamáta – þar á meðal einkabíla, þungaflutningabíla, hópbifreiðar, reiðhjól og gangandi. Talningargögnin veita traustan grunn fyrir greiningu á umferð og samgöngum og nýtast við hönnun innviða, útreikninga og stefnumótun.
Við höfum þróað skilvirkt verklag fyrir bílastæðagreiningar, þar sem talinn er fjöldi og nýting bílastæða á ákveðnum svæðum. Greiningarnar henta vel í þéttbýli, við þróun nýrra byggðakjarna og á fjölsóttum ferðamannastöðum. Þegar fjöldi bílastæða og nýting þeirra er vel þekkt, má t.d. nýta niðurstöður í frekari stýringu eða gjaldtöku á notkun bílastæða eða til að bæta landnýtingu.
Að auki greinum við umferð á gatnamótum og í vegakerfinu, bæði vegna nýframkvæmda og endurbóta. Greiningarnar byggja á talningum, umferðarsköpun, spám og mati á ferðavenjum og álagi.
Við framkvæmdum einnig umferðaröryggisgreiningar, þar sem við skoðum slysagögn, hönnun og aðstæður á vettvangi til að greina áhættu og leggja fram tillögur að öryggisumbótum