Arnarland

Sjálfbært samgönguskipulag 

VSB sá um samgönguskipulag og samgöngugreiningar fyrir Arnarland, nýtt hverfi með blandaðri byggð í Garðabæ. Vinna fólst í að tryggja skilvirkar, öruggar og sjálfbærar lausnir fyrir samgöngur á svæðinu. Verkefnið var unnið í samstarfi við Nordic arkitekta og Landslag .Verkefnaumsjón  var í höndum Nordic arkitekta.

Verkefnið fólst m.a í  samgöngugreiningum þar sem aðgengi og áhrif umferðar að svæðinu voru metin og sjálfbærni og loftslagsmál höfð að leiðarljósi. Þetta fól í sér ítarlega líkanagerð á umferðarflæði, greiningu á göngu- og hjólastígum og samþættingu við Borgarlínukerfið. Markmiðið var að styðja við öruggt, aðgengilegt og lífvænlegt hverfi þar sem stuðlað er að vistvænum ferðavenjum. 

Vinnan var unnin samhliða deiliskipulagsgerð fyrir Arnarlandið, þar sem gert er ráð fyrir um 450 íbúðum, auk atvinnuhúsnæðis og heilbrigðisstarfsemi. Svæðið er hannað með sterkri áherslu á græn svæði og möguleika á nýtingu fjölbreyttra ferðamáta. Samstarf VSB við verkkaupa, sveitarfélagið og aðra hagsmunaaðila tryggði að samgönguinnviðir verða í samræmi við framtíðarsýn um líflegt og aðgengilegt borgarumhverfi. 

*forsíðumynd frá Nordic

Content image
Content image

Upplýsingar um verkefnið

Verkkaupi

Arnarland ehf.

Verktími

2023 - 2025

Staðsetning

Garðabær