Ofanvatns- og fráveitukerfi eru ómissandi innviðir í nútímasamfélagi, sem tryggja hreinlæti, heilbrigði og umhverfisvernd. VSB verkfræðistofa hefur áratuga reynslu í hönnun og ráðgjöf varðandi þessi kerfi og hefur unnið með sveitarfélögum í ýmsum stærðum, þar sem við þekkjum vel áskoranirnar sem fylgja mismunandi aðstæðum.
Við veitum heildstæða ráðgjöf á sviði ofanvatns- og fráveitukerfa, þar sem hönnun er oft hluti stærri byggðatækniverkefna. Við leggjum áherslu á að samþætta lausnir við aðra innviði og taka tillit til loftslagsbreytinga og umhverfismála.
VSB er leiðandi í þróun blágrænna ofanvatnslausna, sem nýta náttúrulega ferla til að meðhöndla ofanvatn, draga úr álagi á hefðbundin kerfi og stuðla að heilbrigðara umhverfi. Við veitum einnig ráðgjöf um endurnýjun og viðhald eldri kerfa og bjóðum hagkvæmar lausnir til að tryggja áframhaldandi virkni kerfanna.