Við beitum hermunartólum og líkanagerð til að meta flæði, afköst og áhrif breytinga á gatnakerfi. Með því að líkja eftir raunverulegri hegðun umferðar getum við mælt áhrif mismunandi aðgerða áður en þær eru framkvæmdar. Í umferðarhermunarverkefnum búum við til líkan af umferð á ákveðnu svæði sem tekur tillit til samspils gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda.
Við vinnum einnig að umferðaljósastýringarverkefnum, þar sem við greinum og hönnun umferðaljósastillingar til að hámarka flæði, draga úr töfum og auka öryggi. Við hönnum ljósastillingar fyrir einstök gatnamót eða samstillum stærri umferðarljósakerfi.