Við höfum reynslu af stefnumótunarvinnu tengt öllum skipulagsstigum, þar sem við vinnum með sveitarfélögum, þróunaraðilum eða öðrum sem vilja taka upplýstar ákvarðanir um þróun samgöngumála til framtíðar. Í verkefnum okkar leggjum við áherslu á öryggi og aðgengi allra vegfaranda og félagslega og umhverfislega sjálfbærni. Inn í stefnumótunarvinnu er oft tekin fyrir áætlun um orkuskipti yfir í vistvæna ferðamáta og það svo tengt loftslagsmarkmiðum.
Við höfum unnið ítarlegar samgöngustefnur tengt aðaskipulagsgerð sveitafélaga þar sem gerð er greining á núverandi aðstæðum og mótuð er heildarstefna til framtíðar. Slíkum stefnum getur fylgt framkvæmdaáætlun, þar sem valkostum er forgangsraðað og gert er kostnaðarmat. Einnig vinnum við mörg minni stefnumótandi verkefni, svo sem bíla- og hjólastæðastefnu, bæði tengt aðalskipulagsgerð og fyrir þróunarreiti á deiliskipulagsstigi.