BIM og upplýsingatækni

VSB verkfræðistofa veitir hagnýta BIM ráðgjöf og er framarlega í notkun upplýsingatækni til að auka skilvirkni og gagnsæi í mannvirkjagerð. Með stafrænum verkfærum styðjum við viðskipavini í að ná betri yfirsýn yfir verkefni, draga úr áhættu og einfalda flókna og tímafreka verkferla. Þannig tryggjum við áreiðanleika og gæði í framkvæmdum á hagkvæman hátt.

Þjónusta VSB á sviði BIM og upplýsingatækni er miðuð að því að einfalda og bæta verkefnastjórnun og úrvinnslu gagna í mannvirkjagerð. Við hjálpum þér að nota líkönin í verkinu þínu til þess að fá yfirsýn yfir stöðu hönnunar, varpa ljósi á ósamræmi og árekstra, magntöku og til að skapa raunsæja yfirsýn yfir framkvæmdastig og kostnað.

VSB styður við hvert skref í ferlinu, frá hönnun og framkvæmd til rekstrar, með það að markmiði að tryggja skilvirkari verkferla og draga úr líkum á óvæntum kostnaðarhækkunum. Markmið okkar er að veita stuðning sem einfaldar ákvarðanatöku og bætir gæði á hagkvæman hátt í öllum stigum verkefna.

Content image

Tengiliðir

Agnes Björg Sigurðardóttir

Byggingarsvið

agnes@vsb.is

661 0968