Framvindueftirlit

Framvindueftirlit er mikilvægt til að tryggja að greiðslur til verktaka séu í samræmi við raunverulega framvindu verksins. VSB verkfræðistofa metur reglulega hvaða verkþáttum er lokið og ber saman við greiðsluáætlun verksins.

Content image

VSB gerir reglulega úttekt á framvindu verksins og skilar skýrslum til verkkaupa og fjármagnsveitenda. Þannig er tryggt að greiðslur vegna verksins séu í réttu hlutfalli við þá verkþætti sem lokið er, sem er mikilvæg forsenda fyrir lánagreiðslum.

Með reglulegu framvindueftirliti er dregið úr áhættu verkkaupa og fjármögnunaraðila. VSB veitir hlutlaust mat á framvindu framkvæmda og tryggir að staða verksins sé í samræmi við innborganir.

Tengiliðir

Örn Guðmundsson

Framkvæmdasvið

orn@vsb.is

660 8609