Samgöngumat

Í samgöngumati eru metin  áhrif nýrrar uppbyggingar, framkvæmda eða skipulagsbreytinga á samgöngur. Matið nær m.a. yfir umferðarflæði, breytt umferðarmagn, aðgengi að aðliggjandi stíga- og gatnakerfum og almenningssamgöngum, hljóðvist og loftgæði. Settar er fram tillögur um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum uppbyggingar, t.d. með því uppbyggingin stuðli að notkun vistvænna ferðamáta. Gætt er sérstaklega að öryggismálum og aðgengi fyrir alla ferðamáta.   Við skoðum lausnir sem hvetja til göngu, hjólreiða og almenningssamgangna, sem hjálpar til við að draga úr umhverfisáhrifum og styðja við lýðheilsu og skilvirkari samgöngur. 

Við framkvæmum mat fyrir alls kyns þróunar- og skipulagsverkefni – bæði stór sem smá. Hvort sem um er að ræða nýjan skóla, íþróttamannvirki, atvinnuhúsnæði eða heilt íbúðahverfi, þá sníðum við nálgun okkar að þörfum hvers verkefnis og þeim kröfum sem til þeirra er gerð. 

Hvort sem um er að ræða sveitarfélög, þróunaraðila eða samgöngustofnanir, þá hjálpar mat okkar til við að tryggja að samgönguáætlanir uppfylli reglugerðarkröfur, þjóni þörfum samfélagsins og stuðli að langtímamarkmiðum um sjálfbærni og hagkvæmi. 

Bíla- og hjólastæðamat er unnið samhliða samgöngumati, en getur einnig staðið sér, fyrir minni uppbyggingarverkefni. Unnið er faglegt mat á þörf og fyrirkomulagi bíla- og hjólastæða í nýju skipulagi eða í tengslum við breytingar á núverandi húsnæði, í samræmi við reglugerðir og stefnumótun þróunaraðila eða sveitafélags. 

Samgöngumat og bílastæðamat aðstoðar viðskiptavini við hönnun svæða og í að taka upplýstar ákvarðanir sem tryggja að samgöngur samræmist þörfum umhverfisins og samfélagsins.  

Þjónustur: 

  • Bíla- og hjólastæðamat 
  • Samgöngumat 
Content image

Tengiliðir

Thijs Kreukels

Samgöngu- og skipulagssvið

thijs@vsb.is

660 8602