Framkvæmdaráðgjöf

Mannvirkjagerð er krefjandi verkefni fyrir verkkaupa þar sem taka þarf fjölmargar mikilvægar ákvarðanir. VSB verkfræðistofa styður verkkaupa með faglegri ráðgjöf og tryggir að vel sé haldið utan um verkefnið frá upphafi til enda.

Á frumstigum þarf verkkaupi að móta skýra sýn fyrir verkefnið. VSB aðstoðar við að greina þarfir, meta valkosti og skipuleggja framkvæmdina. Með vandaðri undirbúningsvinnu er hægt að forðast algeng vandamál og tryggja að verkefnið uppfylli markmið verkkaupa.

Content image

Verkkaupi þarf að taka afstöðu til fjölmargra þátta við þróun verkefnisins. VSB veitir verkkaupa nauðsynlegan stuðning við að skilgreina kröfur til rýma og tæknikerfa, velja hentugt útboðsform og móta kröfur um gæði og öryggi. Þannig getur verkkaupi tekið upplýstar ákvarðanir á öllum stigum.

Með nútímalegri nálgun og stafrænum verkfærum hjálpar VSB verkkaupa að halda góðri yfirsýn yfir framgang og kostnað. Regluleg rýni og eftirfylgni tryggir að hagsmunir verkkaupa séu ávallt í fyrirrúmi og að framkvæmdin haldist innan tímamarka og kostnaðaráætlunar.

Við val á hönnuðum og verktökum nýtur verkkaupi góðs af reynslu VSB. Verkfræðistofan aðstoðar við útboð, samanburð tilboða og samningsgerð, auk þess að fylgjast með framvindu hönnunar og framkvæmda fyrir hönd verkkaupa.

Tengiliðir

Örn Guðmundsson

Framkvæmdasvið

orn@vsb.is

660 8609