Framkvæmdaeftirlit

VSB verkfræðistofa býr yfir áratuga reynslu í umsjón og eftirliti með bygginga- og innviðaframkvæmdum. Á undanförnum árum hefur verkfræðistofan sinnt fjölbreyttum verkefnum í byggingarstjórn og eftirliti með góðum árangri.

Með vönduðu framkvæmdaeftirliti er tryggt að verkefni séu unnin í samræmi við hönnunargögn, verklýsingar og samninga. Eftirlitið nær yfir alla þætti framkvæmda, frá undirbúningi og skipulagningu til verkloka, þar sem áhersla er lögð á gæði, öryggi og hagkvæmni.

Content image

VSB leggur mikla áherslu á að nýta nútímalega tækni við framkvæmdaeftirlit, með notkun dróna, hitamyndavéla og hátækilausna. 

Með innleiðingu sérhæfðra upplýsingakerfa hefur náðst aukið gagnsæi í skráningu og samskiptum milli verktaka og verkkaupa, sem eykur skilvirkni og áreiðanleika í eftirlitsferlinu.

Framkvæmdasvið VSB leggur áherslu á náið samstarf við verkkaupa og verktaka til að tryggja farsæla framvindu verka. Með skýrum verkferlum og markvissri eftirfylgni er unnið að því að uppfylla væntingar verkkaupa um gæði, tíma og kostnað.

Tengiliðir

Örn Guðmundsson

Framkvæmdasvið

orn@vsb.is

660 8609