Áshamar 9 - Leikskóli

Leikskólinn Áshamar er sex deilda leikskóli við Áshamar 9 í Hamraneshverfi Hafnarfjarðar. Hann býður upp á rými fyrir allt að 120 börn á aldrinum 1-6 ára. Byggingin er á einni hæð og hönnuð í L-laga formi. Hún umlykur skjólgott leiksvæði, sem skapar öruggt og þægilegt umhverfi fyrir börnin.

Framkvæmdir við leikskólann hófust í ársbyrjun 2024 og var Þarfaþing hf. valið til að sjá um hönnun, byggingu og frágang húsnæðisins í kjölfar alútboðs. Skólinn var reistur með forsmíðuðum timbureiningum frá Unihouse, sem tryggði bæði hagkvæmni og hraða í byggingarferlinu. Arkitekt hússins er Arkís arkitektar

Lóð leikskólans spannar tæpa 13 þúsund fermetra og var lóðahönnun í höndum Landslags. Framkvæmdir við lóðina, þar með talið girðingar, leiktæki og bílastæði, var í höndum Gröfu og Grjót.

Alls bárust 7 tillögur í alútboðið og sú tillaga sem hlaut flest stig þar sem vegin voru gæði tillagna og verð var valin. Við útboð lóðar bárust 5 gild tilboð og lægst bjóðandi var valinn.

Upplýsingar um verkefnið

Verkkaupi

Hafnarfjarðarbær

Verktími

2023 - 2025

Staðsetning

Áshamar 9, 221 Hafnarfjörður