Útboð og innkaup

Útboð hönnunar og framkvæmda er mikilvægur áfangi í þróun byggingaverkefna og getur haft afgerandi áhrif á framgang þeirra. VSB verkfræðistofa styður verkkaupa við útboð á hönnun og framkvæmdum, hvort sem um er að ræða hefðbundin útboð, rafræn útboð eða útboð sem bjóða þarf út á Evrópska efnahagssvæðinu.

Tryggja þarf að útboðsgögn séu vönduð og lýsi verkefninu með skýrum hætti. VSB nýtir reynslu sína til að aðstoða við gerð útboðs- og samningsskilmála, magntöku og gerð kostnaðar- og tímaáætlana sem eru mikilvægar forsendur góðs útboðs. Við EES útboð þarf að gæta sérstaklega að því að uppfylla allar kröfur um auglýsingar, tímafresti og málsmeðferð.

Content image

Við yfirferð tilboða er nauðsynlegt að verkkaupi hafi trausta ráðgjöf. VSB fer yfir innkomin tilboð með verkkaupa, metur gæði þeirra og hjálpar við samanburð, svo verkkaupi geti tekið upplýsta ákvörðun um val á samstarfsaðilum. Rafræn útboð einfalda ferlið og gera það gagnsærra fyrir alla aðila.

VSB aðstoðar verkkaupa við að tryggja að samningar við hönnuði og verktaka endurspegli þarfir verkefnisins og verji hagsmuni verkkaupa.

Með faglegri umsjón útboða og samninga stuðlar VSB að því að verkkaupi nái settum markmiðum um gæði, tíma og kostnað. Verkfræðistofan fylgir verkkaupa eftir við framkvæmd samninganna og tryggir að staðið sé við gerða samninga.

Tengiliðir

Örn Guðmundsson

Framkvæmdasvið

orn@vsb.is

660 8609