Samgönguskipulag

Við leggjum grunninn að vistvænum og öruggum samgöngukerfum með hönnun og skipulagi sem tekur mið af öllum notendum – jafnt gangandi, hjólandi sem akandi og þeirra sem nota almenningssamgöngur. 

VSB veitir ráðgjöf um heildræna útfærslu á götu- og stígakerfum, þar sem hugað er að umferðaflæði og tengingum við aðliggjandi svæði, með áherslu á hagkvæmni, öryggi og vistvæni. Mikilvægt er að hönnun og útfærsla stíga sé góð til að styðja við virka ferðamáta og bætta lýðheilsu. Eins veitum við ráðgjöf um gatnaskipulag, bæði í nýjum hverfum og gerum tillögur að breytingum á núverandi gatnakerfi, t.d. með tilliti til umferðaröryggis. 

Við erum sérfræðingar í þróun, hönnun og greiningu almenningssamgangna. Við leggjum áherslu á skilvirkni, sjálfbærni, aðgengi og þægindi fyrir notendur í verkefnum okkar. Við styðjum viðskiptavini okkar á öllum stigum verkefna, hvort sem það er að hámarka afköst leiðakerfis, ráðleggja um staðsetningu og hönnun stöðva eða stýra þróun stórra kerfa eins og Borgarlínu.  

Til að styðja við ákvarðanatöku gerum við greiningar á ferðavenjum, þörfum og eftirspurn farþega og samspili milli mismunandi samgöngumáta. Við metum áhrif breytinga á leiðanet, tíðni ferða og biðstöðvar til að hámarka tengingar og minnka ferðatíma. Niðurstöðurnar nýtast við stefnumótun og þróun samgöngukerfa sem mæta þörfum samfélagsins, bæta þjónustu og styðja við vistvæna samgöngumáta.   

Við höfum reynslu í að vinna með valkostagreiningar fyrir leiðakerfi og hönnun gatna og stíga, sem nýtast við að taka góðar ákvarðanir við gatnahönnun og leiðarval almenningssamgangna.  

Þjónustur: 

  • Skipulag göngu- og hjólastíga 
  • Gatnaskipulag  
  • Almenningssamgöngur 
  • Valkostagreiningar 

Tengiliðir

Thijs Kreukels

Samgöngu- og skipulagssvið

thijs@vsb.is

660 8602