VSB er ráðgjafi í samgöngumálum fyrir endurskoðun Aðalskipulags Hveragerðis. Í vinnunni felst m.a. gerð samgöngustefnu, bíla- og hjólastæðastefnu auk almennrar ráðgjafar og stefnumótunar fyrir bættar samgöngur til framtíðar. Markmið vinnunnar er að í Aðalskipulaginu sé skýr stefna um örugg, sjálfbær og skilvirk samgöngukerfi fyrir alla íbúa, ferðamenn og aðra vegfarendur.
Greining var gerð á núverandi ferðamátum og umferð og lögð fram stefna til framtíðar, þar sem m.a. eru skilgreindar öruggar göngu- og hjólaleiðir, aðgengi að almenningssamgöngum og hvernig draga megi úr slysahættu með bættum samgönguinnviðum.
Vinnan er í takt við markmið í Aðalskipulagi Hveragerðis að bærinn verði áfram aðlaðandi, aðgengilegur og vistvænn bær.
Línurnar voru lagðar í skipulagslýsingu sem var auglýst í byrjun árs 2024 og er Aðalskipulagið nú í kynningu fyrir formlega auglýsingu.
Hveragerðisbær
2023 - Í vinnslu
Hveragerði