Stapaskóli opnaði í nýrri glæsilegri byggingu í ágúst 2020,Skólinn var hannaður af Arkís arkitektum með það að markmiði að vera hjarta samfélagsins og menningarmiðstöð fyrir hverfið. Fyrsti áfangi byggingarinnar nær yfir 7.700 fermetra og hýsir meðal annars grunnskóla, frístundaheimili og félagsmiðstöð. Framkvæmdir við annan áfanga, sem mun innihalda íþróttahús og sundlaug, hófust árið 2021 og hefur íþróttahús opnað, en tafir eru á sundlaug.
Skólinn er hannaður til að anna 500 nemendum á grunnskólaaldri og 120 á leikskólaaldri. Skólinn leggur áherslu á metnaðarfullt og fjölbreytt skólastarf þar sem gildi eins og gleði, vinátta, samvinna og virðing eru í forgrunni. Kennsluhættir eru sveigjanlegir með teymiskennslu, samþættingu námsgreina og notkun tækni í námi. Sérstök áhersla er lögð á sköpun, listir og verklegt nám, auk nánara tengsla við nærsamfélagið.
Bókasafn skólans, Stapasafn, býður upp á fjölbreytt úrval bóka, borðspila og tímarita. Markmið safnsins er að efla lestrarfærni nemenda og upplýsingalæsi, sem er forsenda þess að taka virkan þátt í upplýsingaþjóðfélaginu.
Stapaskóli stefnir að því að vera miðpunktur samfélagsins, þar sem nemendur fá tækifæri til að þroskast í skapandi og hvetjandi umhverfi.