VSB sá um verkfræðihönnun á uppbyggingu fimm hæða skrifstofubyggingar auk kjallara, sem tengist eldri skrifstofubyggingu á lóðinni að Skemmuvegi 2a. Byggingin er reist úr krosslímdum timbureiningum (KLT) og unnin samkvæmt umhverfisstöðlum BREEAM, en breytingar á eldri byggingu eru svansvottaðar. Um arkitektahönnun sáu Tendra Arkitektar.
Í húsinu er fjölbreytt aðstaða, þar á meðal sölu- og sýningarsvæði á 1. hæð, skrifstofur á 2.-4. hæð og mötuneyti með svölum á 5. hæð. Í kjallara er tækniaðstaða, hjólageymsla og sturtuaðstaða fyrir starfsmenn.
Byggingin er hönnuð með algilda hönnun í huga, með aðgengi fyrir hreyfihamlaða, þar á meðal upphitað bílastæði og stiga með handlistum. Lóðin er snyrtilega frágengin með grænum lausnum og betra gegndræpi yfirborðs.
Smáragarður
2021 - 2024
Kópavogur