Sky Lagoon á Kársnesi er glæsilegt baðlón þar sem náttúruleg hönnun og fyrsta flokks aðstaða mætast. Lónið býður upp á heita laug, kaldan pott, gufubað, eimbað og veitingasvæði með bar. T.ark arkitektar sáu um hönnun lónsins og var VSB með alla hönnun burðarvirkja, raflagna sem og lagna- og loftræsikerfis, utan sjálfs laugakerfisins.
Gestir njóta baðupplifunar í 1.500 m² lóni með einstakri stein- og klettahönnun. Aðstaðan er nútímaleg, með sérhönnuðum búningsklefum, glæsilegri veitingastofu og yfirgripsmiklu útisvæði með grænum lausnum og náttúrulegu yfirbragði. Baðlónið er hannað með aðgengi fyrir alla í huga, með sérklefum fyrir hreyfihamlaða, lyftu niður í laugina og aðkomu án hindrana.
Nature Resort
2019 - 2022
Vesturvör 44-48, 200 Kópavogur