helgafellsskoli

Helgafellsskóli

Helgafellsskóli var hannaður og byggður í þremur áföngum frá 2016 til 2025. Skólinn er á þremur hæðum, heildarstærð allra áfanga er um 9870 m2 með íþróttahúsi. Skólinn var hannaður af Yrki arkitektum og sá VSB um hönnun fyrir burðarvirki, raflagnir, lagnir- og loftræsingu.

Þegar skólinn verður fullbyggður mun hann hýsa allt að 600 grunnskólanemendur og 110 leikskólabörn ásamt starfsfólki. Byggingin er hönnuð með algilda hönnun að leiðarljósi, sem tryggir aðgengi fyrir alla. Einnig er lögð áhersla á umhverfisvænar lausnir, gott skipulag útisvæða og nútímalega aðstöðu til kennslu og íþrótta.

Upplýsingar um verkefnið

Verkkaupi

Mosfellsbær

Verktími

2016 - 2024

Staðsetning

Gerplustræti 14, 270 Mosfellsbær