Borgarlínan í Reykjavík

Verkefnið felur í sér verkefnastýringu og samræmingu á deiliskipulagsgerð fyrstu lotu Borgarlínunnar, sem nær frá Nauthólsvík í gegnum miðborg Reykjavíkur og upp á Ártúnshöfða.

Fyrsta lota Borgarlínunnar fer um stóran hluta Reykjavíkurborgar og er því um að ræða fjölmargar deiliskipulagsáætlanir sem þarf að vinna, uppfæra og samræma og er verkefnið sennilega eitt stærsta samráðsverkefni á Íslandi. VSB hefur, í samstarfi við Betri samgöngur haldið utan um samráð við íbúa og fyrirtæki  auk þess sem við sinnum samræmingu við Borgarlínuskrifstofu, Vegagerðina og aðrar stofnanir og sveitarfélög þar sem við á.


*myndir frá frumdrögum Borgarlínu lotu 1

Upplýsingar um verkefnið

Verkkaupi

Reykjavíkurborg

Verktími

2022 - í vinnslu

Staðsetning

Reykjavík