Borgarlínan - Frumdrög 4. lota

Verkefnið fólst í gerð frumdraga fyrir Borgarlínu frá Miklubraut að sveitarfélagamörkum Garðabæjar, samtals um fjórir km.  Borgarlínan er hluti af samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins  og tilheyrir þessi kafli lotu 4,  sem fyrirhugað er að nái alla leið inn í Hafnarfjörð.

Verkefnið var unnið í samstarfi við Verkís og Úrbana.

Verkefnið fólst í að skoða rýmisþörf Borgarlínunnar og greina  bestu lausn fyrir alla vegfarendur, varðandi legu Borgarlínu, staðsetningu stöðva, götusnið og leiðir fyrir gangandi og hjólandi Lausnir voru metna með valkostagreiningu (e. Multi Criteria Assessment)   Virkt samráðsferli var tryggt í verkefnavinnunni með hagsmunaaðilum frá Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Betri Samgöngum, Vegagerðinni og Strætó.

*mynd frá frumdrögum lotu 1

Upplýsingar um verkefnið

Verkkaupi

Betri Samgöngur

Verktími

2023-2025

Staðsetning

Kringlumýrabraut suður (Miklabraut að Fossvogi), Hamraborg og Hafnarfjarðarvegur í Kópavogi